Skór

Sunday, July 25, 2010

Sumarkjóll í stærð 14 (UK)



Léttur og sætur sumarkjóll í bleikum lit með fjólubátt munstur. Hefur aldrei verið notaður. Hentar vel við leggings eða yfir bikiní á ströndinni. Efnið er þunnt bómullarefni, bakið er með teygju og þunnt band -sem hægt er að taka- er rétt undir brjóstsaum. Kjóllinn er í stærð 14 (UK). Verð: 2.500.-

Vínrauðir og bleikir skór með fylltum hæl




Vínrauðir og bleikir skór með fylltum hæl í stærð 40. Böndin krossast neðarlega yfir fótlegginn. Þessir skór eru úr Zöru og mjög lítið notaðir. Sér ekki á þeim utan, að húðin á böndunum er aðeins flögnuð af á mjög litlu svæði. Sést mjög illa á myndinni, og því síður þegar maður er kominn í þá. Verð 5.000.-

Brúnir leðurskór með fylltum hæl




Brúnir leðurskór í stærð 40 með fylltum kork hæl. Það er aðeins farið að sjá á leðrinu á hælnum en að öðru leiti eru líta þeir vel út. Verð 3.000.-



Þessir ljós-kampavínslituðu með slaufu eru í stærð 40. Mjög lítið notaðir en það sér smá aftan á hægri hælnum og ysta lag hefur aðeins máðst af ofarlega á vinstri hæl. Þar fyrir utan eru þeir eins og nýjir. Liturinn er mjög flottur, eiginlega mitt á milli þess að vera gylltur og silfraður. Verð 3.500.-

Thursday, July 1, 2010

Laxableikir Salvador Sapena hælaskór í stærð 39




Þessir eru æðislegir, sumarlegir og þægilegir. Mjög lítið notaðir og líta vel út en skórnir voru keypti í Kron í september síðastliðnum. Hællinn er ca. 7 cm hár. Verð: 10.000

Ljósbrúnir skór í stærð 39




Þessir skór eru sérlega þægilegir, með rúnaðri tá og passlega háum breiðum hæl sem er ca. 7 cm. hár. Vel með farinir og lítið notaðir. Reimarnar að framan og mynstrið þar nýtur sín vel þegar maður er í lituðum sokkum eða sokkabuxum innanundir. Verð: 5.000.-

Svartir rússkinnskór m. gylltu mynstri í hæl -st.39




Skórnir eru vel með farnir enda lítið notaðir, rússkinið er aðeins ljósara á tásvæðinu. Hællinn er ca. 8 cm hár og í góðu ástandi með stálhæltöppum. Verð: 5.000.-