Skór

Monday, October 25, 2010

Fagurrauðir rússkinnsskór í stærð 40.




Þessir fallegu skór voru keyptir í Zöru og eru mjög lítið notaðir. Þeir eru fagurrauðir og mjög flottir við fallega kjóla. Skórnir eru í stærð 40 en í þrengra lagi. Rússkinnið er í góðu ásigkomulagi, en það er hefur skrapast af á mjög litlu svæði á hægri hæl. Sést mjög illa. Verð 3.500.

Kóngabláir skór úr Top Shop




Þessir skór eru í stærð 39 og fallega kóngabláir með bláum borðum í stað skóreima. Þægilegir enda með passlega háum hæl. Keyptir í Top Shop, nokkuð notaðir en líta ágætlega út. Smá dökkar rákir fremst á vinstri tá, en ekki áberandi. Nýbúið að skipta um hæltappa. Stærð 39, verð 3.000.

Svartir rússkinnskór í stæðr 39




Þessir svörtu skór eru mjög klassískir og ganga við mjög margt. Ofan við tærnar eru bútar m. svörtum glans sem gefa þeim flott útlit. Rússkinnið aðeins farið að upplitast fremst við tærnar en því er auðvelt að laga með því að pússa skónna reglulega með svörtum glanspúða (hægt að fá mjög víða). Stærð 39, verð 3.500.

Hvítir hælaskór með útskornu mynstri




Þessir hvítu hælaskór með útskornu mynstri eru lítið notaðir og líta mjög vel út. Innleggið í skónum er aðeins farið að losna frá en auðveldlega hægt að laga. Það sést ekki þegar maður er í skónum. Stærð 39, verð 3.500.